(Pistill eftir Jón Jónsson)
Ég er áhugaleikari, af lífi og sál. Held ég hafi leikið í 20 leikritum með Leikfélagi Hólmavíkur og tekið þátt í sirka 140 sýningum þess, víða um land. Leikstýrt fjórum sinnum, samið tvö leikrit og tekið þátt í óteljandi skemmtidagskrám og smáverkefnum, með fullt af góðu fólki sem allt vinnur í sjálfboðavinnu að þessu áhugamáli sínu. Þetta bras er mitt mikilvægasta tómstundagaman og ég er alls ekki viss um að ég byggi á Ströndum ef Leikfélag Hólmavíkur væri ekki til. Held reyndar ekki.
Að sumu leyti er það leiklistin sjálf sem heillar, glíman við karakterinn á æfingatímanum, skemmtunin og spennan í kringum sýningar, hamingjan þegar áhorfendur eru ánægðir, dásamleg tilfinningin þegar manni finnst sjálfum að frábærlega hafi tekist til. Sæluhrollurinn þegar áhorfendur gleðjast eða hryggjast akkúrat eins og að var stefnt. Það er ótrúlega gaman að sýna. Þá bætast áhorfendur við og öll þeirra ólíku viðbrögð, hver sýning gefur leikritinu nýja vídd.
Hitt skiptir ekki síður máli að í gegnum leiklistina kemst maður í töluvert mikil og góð kynni við annað fólk, kynnist ólíkum hliðum mannlífsins og margvíslegri stemmningu, bæði í mótlæti og meðbyr. Það er ekkert minna en frábært að deila með öðrum gleðinni sem skapast þegar stór hópur af fólki gerir sitt allra besta, leggst á eitt til að ná settu marki og hefur heilmikið fyrir því. Félagsskapurinn sem maður fær af því að starfa í leikfélagi við uppsetningu á leiksýningu er eiginlega engu líkur. Við það kynnist maður fólki á mikilvægan máta, ungum og gömlum. Það er sérdeilis gaman að kynnast öllu þessu fólki og gera skemmtilega hluti með því.
Leikfélag Hólmavíkur hefur alltaf verið duglegt að fara í leikferðir og það er eitt ævintýrið til. Ótrúlegustu uppákomur, gleði og gaman. Ég hef til að mynda farið í ógleymanlega ferð á Raufarhöfn með Glímuskjálfta og til Hríseyjar með Viltu finna milljón? Ég hef tekið þátt í ólýsanlegri sýningu á Landabruggi og ást í Reykjanesi við Djúp og frábærri sýningu á Með táning í tölvunni í Súðavík, eftir mikla fyrirhöfn í bæði skipti.
Og á sumum stöðum er skemmtilegra að sýna en annars staðar. Mér fannst alltaf frábært að sýna í Króksfjarðarnesi, þar er einn minn uppáhalds sýningarstaður. Það er hlegið að öðrum hlutum á Drangsnesi en annars staðar, það er gaman að því. Og það er einstök upplifun að fara norður í Árneshrepp og sýna leikrit þar á litla sviðinu í félagsheimilinu í Trékyllisvík. Leikfélag Hólmavíkur hefur margsinnis farið norður og sýnt síðustu sýningu á leikritunum sínum þar og fengið frábærar móttökur. Einstök upplifun. Hver vill ekki taka þátt í slíkum ævintýrum?
Á bak við allt þetta leikstúss og bras eru óteljandi ánægjulegar vinnustundir og æfingar, sumar langar og strangar. Ég sé ekki eftir einni einustu mínútu. Minningarnar eru ómetanlegar.