Leikfélag Hólmavíkur sýnir Bót og betrun í Sævangi, allar sýningar hefjast kl. 20:00:
Frumsýning á páskadag, 17. apríl
2. sýning, annan í páskum 18. apríl
3. sýning, sunnudaginn, 24. apríl
4. sýning, föstudaginn, 29. apríl
Lokasýning, laugardaginn 30. apríl
Mjög ólíklegt er að Leikfélagið komist í leikferð eins og oft áður, svo við hvetjum ykkur öll til að mæta í Sævang meðan hægt er! Sauðfjársetrið í Sævangi hefur súpu á boðstólum fyrir þau sem vilja fyrir sýningar og opnar húsið kl. 18:30. Hægt er að panta miða (og súpu) hjá Ester í síma 693-3474. Við hlökkum til að sjá ykkur!