December 27, 2024

Tobacco Road ¤ 1993 

Tobacco Road var æft í nýju félagsheimili Hólmvíkinga sem var þó ekki fulllokið á þeim tíma. Framkvæmdirnar sem voru í gangi urðu til þess að sviðsopinu þurfti að loka með byggingaplasti. Leikstjórinn þurfti því að rýna í gegnum þykkt plastið til að sjá hvað gekk á. M.a. þess vegna var gripið til þess ráðs á æfingartímanum að skreppa í vinnubúðir að Laugarhóli og þar var æft sleitulaust eina helgi. Þessi æfingaferð var afar vel heppnuð.

Leikhópur, leikstjóri og starfsmenn

Leiksýningin fékk sérlega góða dóma og þótti afbragðs vel leikin. Í heildina tekið er Tobacco Road sjálfsagt eitt af þeim allra best heppnuðu sem Leikfélag Hólmavíkur hefur sett upp. Í leikdómi í Alþýðublaðinu 14. maí 1993 sagði meðal annars:

„Ég minnist þess að hafa séð þessa sýningu á árum áður í Iðnó. Það var afbragðs sýning, en þessi sýning Hólmvíkinga stóð henni síst að baki. Það sem kom mér mest á óvart var náttúruþrunginn kraftur leikendanna flestra hverra, skýr framsögn og góðar hreyfingar.“

Í dagblaðinu Degi sagði:  „Það er ljóst að Leikfélag Hólmavíkur hefur á að skipa hæfu fólki, sem hefur bæði getu og metnað til þess að gera vel. Um það ber heildarbragur uppsetningarinnar á Tobacco Road glöggt vitni.”

Farið var með leikritið í gríðarmikla leikferð um Norðurland. Í þeirri ferð urðu menn margs vísir um marga hluti, t.d. hvernig á að setja upp leikmynd á nýlögðu parket, maka á sig 1/2 lítra af sósulit einu sinni á dag og láta hálfhrunda leikmynd lafa uppi fram að hléi. Einnig tók leikhópurinn virkan þátt í 17. júní hátíð Hríseyinga með miklum glæsibrag. Þar létu hólmvískir Karíusar, Baktusar og fleiri óféti öllum illum látum. Síðan var farið á 15 manna ball um kvöldið. Gaman gaman.

Þrátt fyrir mikla gleði í leikferðinni, varð leikurum og öðrum það ljóst að jafn þungt verk og Tobacco Road hentar ekki sérstaklega vel til langra leikferða. Andrúmsloftið sem ríkir í svona leikritum getur smitað út frá sér og það er ekki mjög upplífgandi. Þar að auki var aðsóknin sums staðar ekki upp á sérlega marga fiska.

tobacco9.jpg (25334 bytes)
tobacco3.jpg (31030 bytes)
tobacco2.jpg (25760 bytes)
tobacco4.jpg (33956 bytes)
tobacco5.jpg (35912 bytes)
tobacco6.jpg (31374 bytes)
 
 
 
 

– Smellið á myndirnar til að sjá stærri útgáfu –

Höfundur: 

Erskine Caldwell.

Leikstjóri:

Skúli Gautason.

Persónur og leikarar:
 

Jeeter Lester:Sigurður Atlason
Ada Lester:María Guðbrandsdóttir
Dude Lester: Arnar Jónsson
Ellie May Lester: Herdís Rós Kjartansdóttir
Amma Lester:Steinunn B. Halldórsdóttir
Systir Bessie Rice:Salbjörg Engilbertsdóttir
Lov Bensey: Einar Indriðason
Pearl Lester: Jóhanna K. Svavarsdóttir
Henry Peabody: Sigurður Sveinsson 
Vignir Pálsson 
Captain Tim:Matthías Lýðsson
George Payne:Vignir Pálsson

Hvíslari: 

Ingibjörg Númadóttir

Ljósamenn:

Bjarki Guðlaugsson og Eysteinn Gunnarsson.

Hljóð:

Arnar S. Jónsson

Sviðsmynd:

Sigurður Atlason, Einar Indriðason, Ásmundur Vermundsson og Jóhann Magnússon.

Förðun og búningar:

María Guðbrandsdóttir, Salbjörg Engilbertsdóttir og Ragnheiður Ingimundardóttir.

Leikskrá:

Sigurður Atlason, Salbjörg Engilbertsdóttir og Skúli Gautason.

Sýningar (16):

Hólmavík – 10. apríl
Hólmavík – 12. apríl
Drangsnes – 17. apríl
Sævangur – 27. apríl
Króksfjarðarnes – 30. apríl
Lýsuhóll, Snæfellsnesi – 1. maí
Kópavogur – 8. maí
Hnífsdalur – 5. júní
Skagaströnd – 11. júní
Siglufjörður – 12. júní
Ólafsfjörður – 13. júní
Freyvangur, Eyjafirði – 14. júní
Raufarhöfn – 15. júní
Hrísey – 17. júní
Laugarbakki – 18. júní
Árnes – 26. júní