January 17, 2025

Skollaleikur ¤ 2000 

Sumarið 2000 var fyrsti áfangi Galdrasýningar á Ströndum opnaður á Hólmavík, á aðfaranótt Jónsmessunnar. 

Af því tilefni æfði Leikfélag Hólmavíkur hluta af hinu mikla og magnþrungna verki Skollaleik og sýndi á útisviði við opnun sýningarinnar. Hafði sýningin titilinn: Er það einleikið?

Sýningin var sett upp á útisviði framan við Hótel Matthildi og tókst frumsýningin afbragðs vel. Síðar um sumarið var aftur sýnt og þá á Café Riis. Margir lögðu hönd á plóg við uppsetningu sýningarinnar.

Höfundur: 

Böðvar Guðmundsson

Leikgerð:

Arnlín Óladóttir, Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir og Salbjörg Engilbertsdóttir

Leikstjórn:

Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir, Salbjörg Engilbertsdóttir

Persónur og leikendur:
 

Þorleifur Kortsson Jón Gísli Jónsson
Klaus, Mattheus, Gísli kúmen og skipstjóriEinar Indriðason
Lars MattheussonSigurður M. Þorvaldsson
MatthildurHrefna Guðmundsdóttir
KlaudiaÁsdís Jónsdóttir
Galdra-Manga, Hallgerður, dómariGuðmundína Haraldsdóttir
Sr. GrímurHafþór Þórhallsson
DómararHrafnhildur Guðbjörnsdóttir
Salbjörg Engilbertsdóttir
SögumaðurHarpa Hlín Haraldsdóttir

Sýningar: 

Hólmavík (á útisviði) – 23. júní 
Hólmavík (Café Riis) – sumarið 2000