Sumarið 2000 var fyrsti áfangi Galdrasýningar á Ströndum opnaður á Hólmavík, á aðfaranótt Jónsmessunnar.
Af því tilefni æfði Leikfélag Hólmavíkur hluta af hinu mikla og magnþrungna verki Skollaleik og sýndi á útisviði við opnun sýningarinnar. Hafði sýningin titilinn: Er það einleikið?
Sýningin var sett upp á útisviði framan við Hótel Matthildi og tókst frumsýningin afbragðs vel. Síðar um sumarið var aftur sýnt og þá á Café Riis. Margir lögðu hönd á plóg við uppsetningu sýningarinnar.
Höfundur:
Böðvar Guðmundsson
Leikgerð:
Arnlín Óladóttir, Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir og Salbjörg Engilbertsdóttir
Leikstjórn:
Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir, Salbjörg Engilbertsdóttir
Persónur og leikendur:
Þorleifur Kortsson | Jón Gísli Jónsson |
Klaus, Mattheus, Gísli kúmen og skipstjóri | Einar Indriðason |
Lars Mattheusson | Sigurður M. Þorvaldsson |
Matthildur | Hrefna Guðmundsdóttir |
Klaudia | Ásdís Jónsdóttir |
Galdra-Manga, Hallgerður, dómari | Guðmundína Haraldsdóttir |
Sr. Grímur | Hafþór Þórhallsson |
Dómarar | Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir Salbjörg Engilbertsdóttir |
Sögumaður | Harpa Hlín Haraldsdóttir |
Sýningar:
Hólmavík (á útisviði) – 23. júní
Hólmavík (Café Riis) – sumarið 2000