December 27, 2024

Sjóleiðin til Bagdad ¤ 1981-82 

Sjóleiðin til Bagdad eftir Jökul Jakobsson var fyrsta  uppsetning Leikfélags Hólmavíkur á leikriti í fullri lengd. Björninn var einþáttungur.

Góð aðsókn var að leikritinu, bæði á Hólmavík og í leikferðalögum. Til Drangsness var sjóleiðin farin á Hilmi ST-1, enda var vegurinn ófær. Síðan var siglt heim aftur um nóttina. Menn létu ekki stoppa sig á þessum árum frekar en þeir gera í dag. Samkomuhúsið Baldur á Drangsnesi hafði nýlega verið tekið í notkun og var ekki alveg fullklárað. Hljómburðurinn var því sérstaklega skringilegur.

Eftir áramótin var sýningin æfð upp og sýnt á Hvammstanga. Siggi Villa flutti leikmyndina á vörubíl, en aðrir fóru á einkabílum. U.þ.b. 50 áhorfendur mættu á sýninguna þar.

Til gamans má geta þess að miðaverð á leikritið var 90 krónur fyrir fullorðna, en 50 krónur fyrir börn.

Lýst er eftir myndum, minningum og nánari upplýsingum!

Höfundur: 

Jökull Jakobsson

Leikstjóri:

Kristín Anna Þórarinsdóttir

Persónur og leikarar:

MundiFriðrik Runólfsson
ÞuríðurKatrín Sigurðardóttir
SignýAnna Jóna Snorradóttir
HildurKolbrún *
EiríkurSigurður Atlason
Gamli maðurinnKristján Jónsson
HalldórJón Magnús Magnússon

Sýningar (5):

Hólmavík – 4. desember
Hólmavík – 6. desember
Hólmavík – 6. desember
Drangsnes – 11. desember
Hvammstangi – 10. janúar