December 27, 2024

Mysingssamloka með sveppum ¤ 1995

Mysingssamlokan er leikrit fyrir þá sem eiga við unglingavandamál að stríða, hvort sem þeir eru unglingar eða foreldrar. Það gerist í heimavistarskóla stúlkna úti á landi, en þangað kemur sonur skólastýrunnar í heimsókn með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Verkið fjallar í stuttu máli um hormónastarfsemi unglinga og óstöðvandi fýsn í að gera allt sem ekki má.

Arnar S. Jónsson datt aldeilis í lukkupottinn þegar valið var í hlutverk í leikritið því auk hans léku hvorki fleiri né færri en níu stúlkur. Aldrei hefur heyrst um aðra eins kynjaskiptingu í leikriti fyrr né síðar.

Í fyrsta sinn var karlmaður í förðunardeildinni. Sigurður M. Þorvaldsson reið á vaðið og er eini karlmaðurinn sem hefur séð um förðunina innan Leikfélags Hólmavíkur enn þann dag í dag, fyrir utan þá karla sem farða sig sjálfir. Sýningar gengu ágætlega og aðsókn var í meðallagi góð.

Leikferðin á Drangsnes er mörgum eflaust enn í fersku minni, en þar þurfti hópurinn óvænt að gista þegar leiðindaveður skall á. Daginn eftir var veðrið ekkert skárra svo formaðurinn Siggi Atla brá á það ráð að fá bát til að skutla fólki og hafurtaski heim. Sú bátsferð var ægileg lífsreynsla. Nokkrir höfðu nefnilega fengið sér samloku með baunum og hangikjöti áður en ýtt var úr vör. Samlokurnar stöldruðu ekki lengi við í maga sumra ferðalanganna, enda verulega vont í sjóinn.

 

– Okkur vantar myndir!!! –

Höfundur: 

Jón Stefán Kristjánsson og Unglingadeild Leikfélags Hafnarfjarðar.

Leikstjóri: 

Sigurður Atlason.

Persónur og leikarar:
 

Jói Arnar S. Jónsson
Jófríður Löwe Brynja Guðlaugsdóttir
Sara LindNanna M. Elfarsdóttir
SiggaHarpa Hlín Haraldsdóttir
HarpaJónea Haraldsdóttir
Gerður Guðbjörg Gunnlaugsdóttir
 Stjarna  Aðalheiður Ólafsdóttir
 Petra Rebekka Atladóttir
 Sóley  Anna G. Ingvarsdóttir
 Svabbi Aðalheiður Hjartardóttir

Hvíslari:

Kristjana Eysteinsdóttir.

Ljósamaður:

Brynjar Ágústsson.

Sviðsmynd:

Sigurður Atlason, Arnar S. Jónsson og Brynjar Ágústsson.

Förðun: 

Sunneva Árnadóttir, Sunna Vermundsdóttir og Sigurður M. Þorvaldsson.

Saumaskapur:

Sunna Vermundsdóttir

Leikskrá:

Sigurður Atlason.

Sýningar (4):

Hólmavík – 24. mars
Hólmavík – 25. mars
Drangsnes – 31. mars
Hólmavík – 4. apríl