January 17, 2025

Jóladagatalið ¤ 2000

Á mörgum leiksýningum hafa nemendur í Grunnskólanum á Hólmavík unnið með Leikfélaginu. Hér var þó gengið skrefinu lengra og tekið upp formlegt samstarf. Rykið var dustað af Jóladagatalinu, leikriti sem félagar í Leikfélagi Hólmavíkur sömdu fyrir áratug, og það var að þessu sinni sett upp á stóra sviðinu í Félagsheimilinu á Hólmavík.

Uppistaðan í leikarahópnum voru nemendur skólans en tveir reyndir leikarar tóku einnig þátt. Annar þeirra var Arnar S. Jónsson sem hafði 10 árum áður leikið drenginn (barn b), en var nú kominn í hlutverk tröllsins. Svona vaxa menn innan leikfélagsins.

Aðeins var sýnt einu sinni en mæting á þá sýningu var líka býsna góð.

– Okkur vantar myndir !!! –

Höfundar: 

Arnlín Óladóttir, Ásmundur Vermundsson, Einar Indriðason, Ester Sigfúsdóttir og Jón Jónsson

Leikstjóri: 

Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir

Leikarar:

TrölliðArnar S. Jónsson
GrýlaHarpa Hlín Haraldsdóttir
LeppalúðiSigurður Á. Vilhjálmsson
StrákurKolbeinn Jósteinsson
StelpaGuðný Guðmundsdóttir
GáttaþefurJón Ingimundarson
KjötkrókurAndri Freyr Arnarsson
KertasníkirSmári Gunnarsson
StúfurSara Benediktsdóttir
HurðaskellirÁrný H. Haraldsdóttir
SkyrgámurPétur Matthíasson

Hvíslari:

Karen Daðadóttir.

Ljós:

Einar Indriðason. 

Sviðsmynd:

Arnar S. Jónsson, Jón Jónsson og Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir.

Förðun: 

Salbjörg Engilbertsdóttir.

Sýningar (1):

Hólmavík – 21. desember 2000.