Eftir mikla mæðu og langa árangurslausa leit að heppilegu og skemmtilegu barnaleikriti tóku félagar í Leikfélaginu sig til og skrifuðu eitt stykki barnaleikrit fyrir jólin 1989. Það var stórskemmtilegt og stykkið mæltist líka býsna vel fyrir, þegar það var sýnt. Leikstjórnin var hópverkefni og gekk nokkuð vel, þó kom úr framköllun mynd frá sýningunni þar sem svo óheppilega vildi til að allir leikarar sneru afturendanum í áhorfendur. Sú mynd var gerð upptæk.
Sýningin var í aðra röndina afrakstur leiklistarnámskeiðs sem Skúli Gautason hélt skömmu áður, það má best sjá á því að 8 manns voru að leika með félaginu í fyrsta sinn. Leikmyndin var gríðarstór hellir sem passaði vel inn í Braggann, þar sem sýnt var. Vakti sviðsmyndin mikla lukku. Það gerði tröllið líka, en það var eitt það ægilegasta sem sést hefur á Ströndum og hafa Strandamenn þó séð mörg tröll um dagana.
Ýmislegt skemmtilegt kom upp á. Grýla sem var leikin af Ásdísi Jónsdóttur var ægilega gjörn á að gleyma textanum sínum. Byrjaði hún stundum aftur á leikritinu og lenti yfirleitt á öðrum að leiðrétta það. Jón Jónsson (Kertasníkir) át hátt í tvö vaxkerti á hverri sýningu, án þess þó að fá nokkru sinni í magann. Það þótti með hreinum ólíkindum.
Eitt af því sem var óvenjulegt var að á fyrstu sýningu voru aðgöngumiðarnir grænir nammipokar sem skrjáfaði síðan í allan tímann svo rétt heyrðist í leikurum. Þetta var ekki reynt aftur. Til stóð að fara í leikferð með Jóladagatalið en af því varð ekki vegna anna leikaranna um hátíðirnar. Aðsókn að sýningunni var nokkuð góð, nema að síðustu sýningunni. Aðsóknin að henni var hreint afleit. En þá voru jólin líka komin og aðalspennan farin úr því hvort það kæmu nokkur jól þetta árið!
Höfundar:
Arnlín Óladóttir, Ásmundur Vermundsson, Einar Indriðason, Ester Sigfúsdóttir og Jón Jónsson
Leikarar:
Tröllið | Gunnar Jónsson |
Grýla | Ásdís Jónsdóttir |
Leppalúði | Ásmundur Vermundsson |
Strákur | Arnar S. Jónsson |
Stelpa | Árdís B. Jónsdóttir |
Gáttaþefur | Ester Sigfúsdóttir |
Hurðaskellir | Einar Indriðason |
Kertasníkir | Jón Jónsson |
Ketkrókur | Jóhanna S. Jónsdóttir |
Skyrgámur | Björk Jóhannsdóttir |
Stúfur | Hafdís B. Kjartansdóttir |
Hvíslari:
Salbjörg Engilbertsdóttir
Sviðsmynd, lýsing og fleira:
Arnlín Óladóttir, Eysteinn Gunnarsson, Magnús Rafnsson, Ólafur Ingimundarson, Jensína Pálsdóttir og Salbjörg Engilbertsdóttir
Förðun:
María Guðbrandsdóttir
Sýningar (4):
Bragganum á Hólmavík – 16. desember
Bragganum á Hólmavík – 17. desember
Bragganum á Hólmavík – 17. desember
Bragganum á Hólmavík – 28. desember