Leikritið Húrra krakki var sett upp árið 1984, eftir að ótal leikrit höfðu verið lesin yfir. Á þessum árum var fjárhagslega hagstætt að setja upp stykki eftir íslenskan höfund, en þó varð krakkinn ofan vegna þess að leikritið er óborganlega fyndið þegar það er vel leikið. Sú varð líka raunin að margir leikarar fóru á kostum í Húrra krakka og urðu jafnvel allt að því ógleymanlegir.
Sýningar tókust í alla staði ljómandi vel og frumsýningin í Bragganum var fyrir troðfullu húsi.
Farið var í allsögulega leikferð með verkið. Þar bar m.a. til tíðinda að leikarar lögðu á lykkju á leið sína út af prestskosningum og hjólabúnaður yfirgaf kerruna sem leikmyndin var í, rétt meðan leikferðalagið stóð sem hæst á Laxárdalsheiði. Meira um það hér.
Höfundur:
Arnold og Bach
Leikstjóri:
Auður Jónsdóttir
Persónur og leikarar:
Tómas tútomma | Sigurður Atlason |
Anna stofustúlka | Drífa Hrólfsdóttir |
Hanna | Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir |
Prófessorinn | Haraldur V.A. Jónsson |
Úlfur Austmar | Sigurður Atlason |
Thorkelsen sýslumaður | Friðrik Runólfsson |
Frú Matthildur | Katrín Sigurðardóttir |
Helga Stefáns | Anna Jóna Snorradóttir |
Hillaríus Foss | Gunnar Jóhannsson |
Hvíslari:
Birna Dís Björnsdóttir
Smíði og önnur vinna:
Ásmundur Vermundsson, Haraldur V.A. Jónsson, Sigurður Atlason, Benedikt Grímsson, Ásdís Sigurþórsdóttir og Sævar Benediktsson.
Búningar og annar saumaskapur:
Sunna Vermundsdóttir
Sýningar (8):
Hólmavík – 13. apríl
Hólmavík – 14. apríl
Hólmavík – 14. apríl
Hólmavík – 21. apríl
Búðardal – 4. maí
Króksfjarðarnes – 5. maí
Reykjum – 6. maí
Broddanes – 6. maí