December 27, 2024

Gott kvöld ¤ 2011

Leikritið Gott kvöld eftir Áslaugu Jónsdóttur var sýnt um áramótin 2011-2012. Leikritið hlaut tilnefningu til Grímuverðlaunanna árið 2008 sem besta barnaleikritið.

Um er að ræða barnaleikrit með söngvum fyrir fólk á öllum aldri og voru leikarar alls 22. Leikstjóri var Kristín Sigurrós Einarsdóttir. Sagan segir frá strák sem er aleinn heima með bangsa sér til halds og trausts þegar pabbinn skreppur í burtu. Allskyns kynjaverur kíkja í heimsókn og það er líf og fjör. Leikritið tók þrjú korter í flutningi.

Höfundur: Áslaug Jónsdóttir

Leikstjóri: Kristín S. Einarsdóttir

Persónur og leikarar:

Hvíslari:

Lýsing:

Sviðsmynd:

Leikmunir og búningar:

Förðun:

Leikskrá:

Sýningar (5):

29. desember 2011 – Frumsýning, Félagsheimilinu á Hólmavík, kl. 20.00
30. desember 2011 – önnur sýning, Félagsheimilinu á Hólmavík, kl. 20:00
4. janúar 2012 – þriðja sýning, Félagsheimilinu á Hólmavík, kl. 20.00
5. janúar 2012 – fjórða sýning, Félagsheimilinu á Hólmavík, kl. 14:15 (skólasýning)
6. janúar 2012 – fimmta sýning, Félagsheimilinu á Hólmavík, kl. 21:00