Glímuskjálfti er farsi þar sem lífleiki og fjör er í fyrirrúmi, atburðarásin er hröð og áður en nokkur veit af er allt komið í næstum óleysanlegan hnút. Að sjálfsögðu rætist þó úr að lokum eins og í öllum góðum försum.
Leikritið Glímuskjálfti var endurbætt af leikstjóra verksins, Herði Torfasyni, fyrir uppsetninguna. Það hafði áður verið sýnt undir nöfnunum Glímukappinn og Orrustan á Hálogalandi. Þessi farsi var mikið sýndur á árunum eftir stríð, en hafði lítið verið leikinn síðustu 15 árin áður en Leikfélag Hólmavíkur setti verkið upp. Mætingin heima fyrir var góð og leikstjórinn fær þau allra bestu meðmæli sem völ er á hjá leikfélaginu.
Vel gekk að manna stykkið, fyrir utan að leikarinn sem glímdi við hlutverk glímukappans mikla gaf leiklistina upp á bátinn á miðju æfingatímabili. Jón Gísli Jónsson hljóp í skarðið, eins og gerst hefur bæði fyrr og síðar. Hann lenti svo reyndar í óhappi u.þ.b. viku fyrir sýningu þegar að hann stakk sér niður fossinn Sleðamannaskelfi á Steinadalsheiði á vélsleða. Það blæddi inn á vöðva í lærinu, þannig að glímukóngurinn sjálfur þurfti að styðjast við hækjur. Þær notaði hann reyndar ekki inni á sviðinu og gat vel leikið að hann væri óhaltur.
Leikferðin með Glímuskjálfta var ekkert smáræði. Stefnan var tekin á vinabæ Hólmavíkur, Raufarhöfn og sýnt víða á leiðinni. Auk þess brugðu menn sér út á Snæfellsnes. Aðsóknin var víðast hvar ásættanleg, þó var hún afleit á Húsavík og fremur dræm á Kópaskeri. Fjölmenni mætti hins vegar á sýninguna í vinabæ Hólmavíkur á Raufarhöfn.
Höfundur:
Schwarts og fleiri
Leikstjóri:
Hörður Torfason
Aðstoðarleikstjóri:
Björk Jóhannsdóttir
Persónur og leikarar:
Hermann Hermanns | Sigurður Atlason |
Hekla, kona Hermanns | Svanhildur Jónsdóttir |
Hermann, sonur Hermanns | Arnar Jónsson |
Þóra, dóttir Hermanns | Ingibjörg Sigurðardóttir |
Vilmundur Sveinsson | Vignir Pálsson |
Anne Lise Hansen | Ester Sigfúsdóttir |
Agnes Torfason | Jensína Pálsdóttir |
Zakarías, maður Agnesar | Jón Jónsson |
Hermann Hermanns, glímukappi | Jón Gísli Jónsson |
Hvíslari:
Hildur Björnsdóttir
Ljós:
Jóhann L. Jónsson og Sigurður M. Þorvaldsson
Sviðsmynd:
Ásmundur Vermundsson, Sigurður Atlason og Helga B. Sigurðardóttir
Förðun:
María Guðbrandsdóttir, Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir og Salbjörg Engilbertsdóttir
Búningar:
Helga Gunnarsdóttir
Leikmunir:
Jóhanna S. Jónsdóttir
Sviðsmenn:
Eysteinn Gunnarsson, Jóhanna Signý Jónsdóttir, Helga Björk Sigurðardóttir, Árdís Björk Jónsdóttir og Jóhanna K. Svavarsdóttir
Matráðskona í leikferð:
Ásdís Jónsdóttir
Leikskrá:
Jón Jónsson, Ester Sigfúsdóttir og María Guðbrandsdóttir
Sýningar (14):
Hólmavík – 11. apríl
Hólmavík – 15. apríl
Hólmavík – 18. apríl
Hólmavík – 18. apríl
Sævangur – 27. apríl
Drangsnes – 28. apríl
Króksfjarðarnes – 1. maí
Lýsuhóll – 2. maí
Laugarbakka – 27. maí
Miðgarður, Varmahlíð – 28. maí
Kópasker – 29. maí
Raufarhöfn – 30. maí
Húsavík – 31. maí
Trékyllisvík – 6. júní