December 27, 2024

Glæsileg sýning skólabarnanna á Drangsnesi

Leikfélagið var í vetur samstarfsaðili grunnskólanna á Drangsnesi og Hólmavík við uppsetningu á sýningunni Ævintýraferð að miðju jarðar. Þar var um að ræða gríðarstórt leiklistarverkefni þar sem leikrit var sett upp á Drangsnesi með þátttöku skólans þar og miðstigs skólans á Hólmavík.

Tvær sýningar voru á verkinu sem byggir á ævintýri Jules Vernes (Leyndardómar Snæfellsjökuls) og var hér á ferðinni ný leikgerð eftir Kolbrúnu Ernu Pétursdóttir sem einnig leikstýrði verkinu. Sýnt var í samkomuhúsinu Baldri á Drangsnesi, 11. og 12. apríl.

Sýningarnar tókust ljómandi vel, börnin og aðstandendur stóðu sig frábærlega og var gaman að sjá þetta gamla ævintýri lifna við.