December 27, 2024

Draugasaga ¤ 2015-2016

Draugasaga er íslenskur einleikur sem var sérstaklega skrifaður fyrir Leikfélag Hólmavíkur og Sauðfjársetur á Ströndum. Höfundur er meðlimur leikfélagsins, Jón Jónsson þjóðfræðingur á Kirkjubóli. Verkið byggir á þjóðsögum af svæðinu, sígildri mannvonsku og margvíslegum myrkraverkum fyrri alda. Sögusvið leikritsins er beinlínis í Sævangi, þar sem leikritið var sýnt. Húsdraugurinn í Sævangi segir frá ýmsum draugum á svæðinu sem hann hefur verið samferða frá því hann var drepinn og hans eigin hryllilega ógæfu- og sorgarsaga kemur hægt og sígandi fram í skímuna.

Verkið er eilítið óhugnanlegt og alls ekki við hæfi barna 12 ára og yngri, ekki viljum við að blessuð börnin verði myrkfælin!

Jón Jónsson höfundur verksins leikstýrði Draugasögu, en Arnór Jónsson er leikarinn. Hemúllinn samdi hljóðmyndina, Ásta Þórisdóttir og Ester Sigfúsdóttir sjá um förðun og búninga og Jón Valur Jónsson um tæknimál ásamt Jóni. Suma sýningardaga var boðið upp á súpu í Sævangi fyrir sýningu.

Árið 2016 var leikritið tekið upp aftur og sýnt fyrir troðfullu húsi á einleikjahátíðinni Act Alone í félagsheimilinu á Suðureyri. Sú sýning heppnaðist afbragðs vel.

Höfundur og leikstjóri: Jón Jónsson

Persónur og leikari: 

Draugurinn – Arnór Jónsson

Tækni-, ljós- og hljóðmenn: Jón Valur Jónsson og Jón Jónsson

Lýsing og sviðsmynd: Jón Jónsson

Hljóðmynd: Hemúllinn

Búningar: Ester Sigfúsdóttir

Hárgreiðsla og förðun: Ásta Þórisdóttir og Ester Sigfúsdóttir

Sérstakar þakkir: Félagsmiðstöðin Ozon, Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir & rafmagnsbjörgunarþríeykið Bjarki, Börkur og Júlli

Draugurinn í Sævangi og Pjakkur fer niður um ís á Steingrímsfjarðarheiði – teikningar eftir Sunnevu Þórðardóttur

Sýningar (6 sýningar)

Forsýning fyrir þjóðfræðinema í HÍ – Sævangur, lau. 3. okt. 2015, kl. 21:00
Frumsýning – Sævangur, mið. 7. okt. 2015, kl. 20:00
Þriðja sýning – Sævangur, fös. 9. okt. 2015, kl. 22:00
Fjórða sýning – Sævangur, fim. 15. okt. 2015, kl. 20:00
Fimmta sýning – Suðureyri á Act Alone, fim. 11. ágúst 2016, kl. 22:00
Sjötta sýning – Sævangur, lau. 13. ágúst 2016, kl. 22:00.

Aðgangseyrir var kr. 1.800 og sýningin er 55 mín.