Nú var leikinn gamanleikur eftir Kjartan Ragnarsson. Æfingar hófust í endaðan febrúar og vel gekk að manna hlutverkin í upphafi. En eftir nokkrar æfingar kastaði Sigurður Atlason hempunni og fór á togara. Þá þurfti að fá nýjan klerk og féllst Matthías Lýðsson á að taka presthlutverkið í fóstur.
Aðalbjörg Þorsteinsdóttir æfði hlutverk Ingu þar til nokkrum dögum fyrir frumsýningu, en þá kenndi hún lasleika og varð að gefa hlutverkið frá sér. Þá var tekin ný leikkona inn í hópinn, Rut Bjarnadóttir, sem tók við hlutverki Hrafnhildar, sem hafði æft Erlu Dögg, en Hrafnhildur tók við af Aðalbjörgu. Þetta var talið happadrýgra því einungis nokkrir dagar voru til frumsýningar og Hrafnhildur hafði fylgst með æfingum frá upphafi. Ekki þurfti því að fresta frumsýningu.
Það vildi reyndar svo til að í leikritinu er Inga piparjúnka, sem aldrei hefur verið við karlmann kennd og ætlar sér það ekki. En það var allt annað mál með Hrafnhildi, því hún átti von á sínu öðru barni. Svo það lá dálítið á að klára sýningar áður en mikið færi að sjást á henni. Eftir fyrri sýninguna á Drangsnesi gerði vitlaust veður svo að leikfélagarnir urðu að gista á Drangsnesi og voru síðan sóttir morguninn eftir í miklum flýti, þannig að leikmyndin var skilin eftir. Þetta veður stóð lengi yfir.
Í endaðan júní var farið að huga að verkinu aftur, það var æft upp, og síðan farið á Drangsnes og sýnt þar aftur, fyrst að leikmyndin stóð þar enn. Á þeirri sýningu og annarri á Hólmavík, sem báðar voru vel sóttar, var piparjúnkan Inga farin að þykkna svo ískyggilega mikið undir belti að áhorfendur höfðu á tilfinningunni að hún væri hreint ekki öll þar sem hún væri séð.
– MYNDIR ÓSKAST –
Höfundur:
Kjartan Ragnarsson
Leikstjóri:
Kristín Bjarnadóttir
Aðstoðarmaður leikstjóra:
Hrefna Sigurðardóttir
Persónur og leikarar:
Þorgerður | Anna Jónsdóttir |
Inga | Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir |
Addý | Drífa Hrólfsdóttir |
María | Guðmunda Ragnarsdóttir |
Erla Dögg | Rut Bjarnadóttir |
Þórður | Haraldur V.A. Jónsson |
Séra Benedikt | Matthías Lýðsson |
Lóa, kona hans | Hrefna Sigurðardóttir |
Bína á löppinni | Katrín Sigurðardóttir |
Tryggvi læknir | Kristján Jónsson |
Tryggvi Ólafur | Friðrik Runólfsson |
Biskupinn | Friðrik Runólfsson |
Sviðsmynd:
Ásmundur Vermundsson, Benedikt Grímsson, Eyjólfur K. Emilsson, Hörður Ásgeirsson, Jóhann Skúlason o.fl.
Búningar og sviðsmunir:
Alma Brynjólfsdóttir, Ragna Þóra Karlsdóttir og Rut Bjarnadóttir.
Lýsing:
Magnús H. Magnússon og Ragnar Ölver Ragnarsson.
Sýningar (5):
Hólmavík – 9. apríl
Hólmavík – 10. apríl
Drangsnes – 15. apríl
Drangsnes – 25. júní
Hólmavík – 28. júní