January 17, 2025

Allt í plati ¤ 1992-93 

Allt í plati er barnaleikrit af bestu gerð. Í því blandast saman hinar ýmsu persónur sem Thorbjörn Egner og Astrid Lindgren sköpuðu og allt fer í ægilegan hrærigraut undir styrkri stjórn Línu Langsokks og Níelsar apa. Mikill söngur er í verkinu og var brugðið á það ráð að setja saman leikhúshljómsveit til að spila undir.

Ágætlega gekk að manna sýninguna og 7 manns þreyttu frumraun sína á sviði. Á ýmsu gekk við uppsetningu verksins. Ræningjarnir og ljónið þeirra fór til dæmis í auglýsingaherferð um Hólmavík og enduðu allir í klóm lögreglunnar ásamt Mikka ref sem hafði stolið hangikjöti og svínarifjum úr KSH. Vakti það mikla kátínu meðal viðstaddra barna.

Jón Gísli Jónsson gerðist bjargvættur þegar allt virtist komið í hönk og tók við tveim hlutverkum vegna forfalla með litlum fyrirvara. Litlu munaði að hann fengi að taka við einu hlutverki í viðbót þegar ljón ræningjanna datt fram af ógnarháu sviðinu á sýningunni á Drangsnesi. Sem betur fer stóð það upp aftur, grimmara en nokkru sinni.

Leikferðin til Reykjavíkur var ævintýraleg í meira lagi. Þangað var farið á einkabílum og allt gekk vel þar til lagt var af stað heim. Þá skall á ofsabylur með tilheyrandi snjókomu og ferðin sóttist verulega seint. Lestin stoppaði í Deildarbrekkunni sálugu og voru bílarnir spilaðir þar upp af góðum mönnum. Fyrstu bílarnir voru komnir til Hólmavíkur eftir 14 tíma ferðalag og voru menn blautir, svangir og hraktir. Svona gerum við aldrei aftur. Betra er að bíða eftir að veðrinu sloti.

 
 
 

– Smellið á myndirnar til að sjá stærri útgáfu –

Höfundur: 

Þröstur Guðbjartsson.

Leikstjóri:

Sigurður Atlason.

Persónur og leikarar:
 

Lína LangsokkurHerdís Kjartansdóttir
Níels apiÓsk Ágústsdóttir
Lilli klifurmúsEster Ingvarsdóttir
Mikki refurSigurður Atlason
Amma músGuðmunda Ragnarsdóttir
Hérastubbur bakariHrafnhildur Guðbjörnsdóttir
Jón Gísli Jónsson
Stubbur bakaradrengurRebekka Atladóttir
JesperVignir Örn Pálsson
Jón Gísli Jónsson
KasperArnar S. Jónsson 
JónatanEysteinn Gunnarsson
Ljónið Sigmundur Sigurðsson
Soffía frænkaSalbjörg Engilbertsdóttir
Karíus Árdís B. Jónsdóttir
BaktusJóhanna Ása Einarsdóttir

Leikhúsbandið:

Ásdís Jónsdóttir – Gítar
Eyþór Gissurarson – Gítar
Sveinbjörn Dýrmundsson – Bassi
Ragnar Ölver Ragnarsson – Trommur 
Gunnar Grímsson – Trommur á Drangsnesi

Hvíslari:

Hildur Björnsdóttir.

Sviðsmynd:

María Guðbrandsdóttir, 
Sigurður Atlason og 
nemendur Grunnskólans.

Förðun:

María Guðbrandsdóttir og Salbjörg Engilbertsdóttir.

Búningar

Sunna Vermundsdóttir, Jónína Gunnarsdóttir og Sólrún Jónsdóttir.

Ljósamenn:

Jóhann L. Jónsson og Bjarki Guðlaugsson.

Sýningar (6):

Hólmavík – 21. nóvember
Hólmavík – 21. nóvember
Hólmavík – 28. nóvember
Drangsnes – 29. nóvember
Reykjavík – 13. desember
Hólmavík – 2. janúar