December 27, 2024

Á sama bekk ¤ 1996 

Einþáttungurinn Á sama bekk var einn af þremur leikþáttum sem leiknir voru í Kaffileikhúsinu á Café Riis sumarið 1996. Þetta stutta leikrit eftir Sævar Sigurgeirsson er hrein snilld. Það fjallar um eldra fólk sem sest á sama bekk í almenningsgarði. Þau taka tal saman og fljótlega kemur ýmislegt sem engan hafði órað fyrir í ljós.

Leikskráin sem gerð var fyrir uppsetninguna vakti mikla athygli. Hún var mikið föndurverk, handskrifuð og varla stærri en meðalfluga.

– Okkur vantar myndir af þessum leikþætti –

Höfundur: 

Sævar Sigurgeirsson.

Sviðsmynd og leikstjórn:

Ýmsir sem áttu leið fram hjá bekknum.

Hvíslari, ljós og fleira slíkt:

Jón Jónsson og fleiri.

Persónur og leikendur:

Gömul konaEster Sigfúsdóttir
Gamall maðurSigurður Atlason

Sýningar (3):

  • Hólmavík (Café Riis) – 8. ágúst 1996
  • Djúpavík – 10. ágúst 1996
  • Hólmavík (Café Riis) – 15. ágúst 1996