Gamanleikurinn sMaL var sérstaklega saminn fyrir Sauðfjársetur á Ströndum og Leikfélag Hólmavíkur. Höfundurinn er Arnar S. Jónsson, fyrrum formaður Leikfélags Hólmavíkur og fyrrum framkvæmdastjóri Sauðfjársetursins, en var þá fluttur suður á Stór-Hafnarfjarðarsvæðið, öllum til mestu armæðu. Leikfélagið setti svo einþáttunginn og gamandramað sem er um það bil 50 mínútur í sýningu upp á Sviðaveislu sem haldin var í Sævangi haustið 2014, við mikinn fögnuð áhorfenda.
sMaL er bráðfyndinn gamanleikur sem hentar vel til sýninga í bændasamfélögum víða um land. Hann gerist í smalamennsku á fjöllum uppi og þær týpur sem koma við sögu eru kunnuglegar öllum sem hafa tekið þátt í slíkri skemmtun sem smalamennskur eru.
Þátturinn var svo sýndur aftur síðar um haustið á leikhúskvöldi í Sævangi, þar sem etin var leikfélagssúpa. Þessi sýning var haldin í tengslum við Bókmennta- og ljóðaviku í Strandabyggð sem Leikfélagið og Sauðfjársetrið tóku virkan þátt í. Á dagskránni var þá einnig hálfgert uppistand Jóns Jónssonar, annars gamals leikfélagsformanns. Þar sagði hann gamlar og góðar mistakasögur af Leikfélaginu og sýningum þess víða um heim.
Höfundur:
Arnar S. Jónsson
Leikstjóri:
Jón Jónsson
Framkvæmdastjórn:
Ester Sigfúsdóttir
Persónur og leikarar:
Hróbjartur | Eiríkur Valdimarsson |
Sveinn bóndi | Jón Jónsson |
Sigríður (kona Sveins) | Esther Ösp Valdimarsdóttir |
Fríða (dóttir þeirra) | Esther Ösp Valdimarsdóttir |
Mófríður (móðir Sigríðar) | Svanhildur Jónsdóttir / Einar Indriðason |
Nilli björgunarsveitarmaður | Einar Indriðason |
Viðar bóndi í Miðhúsum | Viðar Guðmundsson / Trausti Rafn Björnsson |
Útlendingur á villigötum | Ester Sigfúsdóttir |
Lýsing:
Jón Jónsson og Einar Indriðason
Tækni- og hljóðmenn:
Svanhildur Jónsdóttir og Ester Sigfúsdóttir
Sviðsmynd, búningar, förðun:
Leikhópurinn
Leikskrá:
Jón Jónsson
Sýningar:
Frumsýning – Sviðaveisla í Sævangi – 25. október 2014 (105 áhorfendur)
Önnur sýning – Leikfélagssúpa í Sævangi – 22. nóvember 2014 (60 áhorfendur)