Smellið á nöfn leikritanna og sjá! Nýr heimur mun ljúkast upp – þar undir má finna fjölbreytilegustu upplýsingar um hvert leikrit.
2024 – Ævintýraferð að miðju jarðar (samstarfsverkefni með Grunnskólunum á Drangsnesi og Hólmavík)
2023 – Maður í mislitum sokkum2020 – Stella í orlofi (samstarfsverkefni með Grunn- og Tónskóla, ný leikgerð)
2019 – Dúkkulísa (Þjóðleikur: Leikhópurinn Hansi vörtusvín, samstarf við Grunnskóla Hólmavíkur)
2018 – Of(S)ein (Skapandi sumarstörf: Strandir í verki, frumsamið)
2018 – Strandanornir (Skapandi sumarstörf: Strandir í verki, frumsamið)
2018 – Halti-Billi
2017 – Jóladagatalið (Samstarf við Grunnskóla Hólmavíkur)
2017 – Morð! (Þjóðleikur, samstarf við Grunnskólann)
2016 – Blessað barnalán2016 – Ballið á Bessastöðum (Samstarf við Grunnskólann)
2015 og 2016 – Draugasaga (Frumsaminn einleikur)
2015 – Hlauptu, týnstu! (Þjóðleikur, samstarf við Fjósið ungmennahús og dreifnám FNV)
2015 – Útskriftarferðin (Þjóðleikur, samstarf við Grunnskólann)
2015 – Sweeney Todd2014 – sMaL (Frumsaminn einþáttungur)
2014 – Skilaboðaskjóðan (Samstarf við Grunn- og tónskólann)
2013 – Makalaus sambúð2013 – Tjaldið (Þjóðleikur: Leikhópurinn Strandhögg)
2012 – Með allt á hreinu (samstarf við Grunn- og tónskólann, ný leikgerð)
2011 – Gott kvöld (Samstarf við Grunnskólann)
2011 – Með táning í tölvunni
2010 – Grease (Samstarf við Grunn- og tónskólann)
2009 – Viltu finna milljón?
2008 – Dýrin í Hálsaskógi (Samstarf við Grunn- og tónskólann)
2007 – Þið munið hann Jörund
2006 – Fiskar á þurru landi
2004 – Frænka Charley´s
2004 – Þrymskviða hin nýrri (Samstarf við Grunnskólann, frumsamið)
2003 – Sex í sveit
2003 – Litli forvitni fíllinn (Samstarf við Grunnskólann)
2001 – Karlinn í kassanum
2000 – Jóladagatalið
2000 – Skollaleikur
1999 – Markólfa
1996 og áfram – Um skaðsemi áfengisins (Einleikur)
1996 og 1997 – Jóðlíf (Einþáttungur)
1996 – Á sama bekk (Einþáttungur)
1995 – Djúpavíkurævintýrið (Frumsamið)
1995 – Mysingssamloka með sveppum
1994 – Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan (ný leikgerð)
1994 – Lífið er lotterí (Dagskrá – Jónas og Jón Múli)
1993 – Líf og friður (Samstarf við Grunnskólann)
1993 – Tobacco road
1992 – Allt í plati
1992 – Glímuskjálfti
1991 – Karíus og Baktus (Barnaleikrit, einþáttungur)
1991, 1993, 1994, 1995, 2000 – Pýramus og Þispa (Einþáttungur)
1991 – Það er list að lifa (3 einþáttungar)
Staður og stund
Þú ert í blóma lífsins, fíflið þitt
Náttgalabær (ný leikgerð)
1990 – Skjaldhamrar
1989 – Jóladagatalið (Barnaleikrit, frumsamið)
1989 – Landabrugg og ást
1985 – Köld eru kvennaráð
1984 – Húrra krakki
1983 – Blessað barnalán
1981-1982 – Sjóleiðin til Bagdad
1981 – Björninn
Og enn meiri leiklist á Ströndum á sama tímabili 🙂
Þó Leikfélag Hólmavíkur hafi gjört margt á sviði leiklistar síðan það var stofnað hefur samt eitt og annað skemmtilegt gerst fleira á því sviði á Ströndum á starfstímanum. Hér eru nokkur dæmi:
2010 – Skjaldbakan (Smári Gunnarsson)
1987 – Betri er þjófur á nóttu en snuðra á þræði (Grunnskólinn á Hólmavík)
1986 – 10 litlir negrastrákar (Grunnskólinn á Hólmavík)
1984 – Frænka Charleys (Leikfélagið Elding í Kollafirði)
… og hér eru nokkur dæmi um þetta “fjölmargt fleira” sem félagið hefur gert
Auk þess hefur Leikfélag Hólmavíkur á þessum sömu árum og öll þessi leikrit hafa verið sýnd staðið fyrir margvíslegum skemmtiatriðum og leikið ótal smáþætti og sett saman dagskrár, séð um 17. júní og bændahátíðir og 1. maí skemmtanir, tekið þátt í allra handa hátíðahöldum, skrifað leikrit, haldið upp á afmælin sín með bravúr, séð um samningaviðræður við jólasveina, gert útvarpsþátt, leikið í kvikmyndum og svo ótal margt fleira að ekki er nokkur lifandis leið að nefna það allt.
Jóladagatalið (vefútgáfa): Fyrir jólin 2015 var gerð útvarps- eða vefútgáfa af Jóladagatalinu, því gamla og góða leikriti sem Strandamenn og leikfélagar sömdu saman haustið 1989.
Leiklistardagurinn mikli (13. mars 2014): Súpufundur í hádeginu þar sem sagt var frá sögu Leikfélags Hólmavíkur og uppsetningu vetrarins, um kynninguna sáu Jón Jónsson og Esther Ösp Valdimarsdóttir. Heimsókn frá Kómedíuleikhúsinu sem sýndi Fjalla-Eyvind á Café Riis. Sýningin Vestfirsk leiklist opnuð í Hnyðju á eftir, gerð af Leikminjasafni Íslands, en þar er fjallað um leiklist á vestanverðum Vestfjörðum á 13 söguspjöldum. Viðbót við sýninguna var ljósmynda- og leikskrársafn Leikfélags Hólmavíkur.
Rómeó og Júlía (2014): Námskeið í leikhússpuna og uppsetning á spunaútgáfu af Rómeó og Júlíu á 30 mínútum – sett upp á Hörmungardögum 2014. Leikstjóri og leiðbeinandi var Guðbjörg Ása.
Morðgáta á Hörmungardögum (2014): Samvinnuverkefni með Sauðfjársetri á Ströndum – viðamikið morðgátuverkefni, 4 tíma kvöldverður og spunaleikrit með 9 leikpersónum og fjölda matargesta á Sauðfjársetrinu.
1990 – 100 ára afmæli Hólmavíkur (uppákomur og dagskrá)
Ýmislegt sem áður gerðist 🙂
Leikfélag Hólmavíkur var formlega stofnaði 1981. Áður hafði þó löngum verið í gangi öflugt leiklistarstarf á Ströndum, sem ótal dæmi sanna. Hér má finna nokkra fróðleiksmola:
Leiktjöldin frægu
Eldri leikrit