February 5, 2025

Litli forvitni fíllinn

Litli forvitni fíllinn ¤ 2003

Þegar Skúli Gautason mætti til Hólmavíkur til að setja upp gamanleikinn Sex í sveit, ákvað Leikfélagið að grípa tækifærið og ráða konu hans, söngdívuna Þórhildi Örvarsdóttur, til að setja upp leikrit í samvinnu við nemendur Grunnskólans.

Fyrir valinu varð verkið Litli forvitni fíllinn, sem er leikþáttur sem fjallar um það hvernig og af hverju fíllinn fékk ranann sem hann gengur með enn þann dag í dag. Leikþátturinn er unninn upp úr sögu eftir Rudyard Kipling. Nemendur 5. og 6. bekkjar Grunnskólans á Hólmavík skipuðu leikaraflokkinn.

Leikhópurinn samankominn - ljósm. Kristín Einarsdóttir

Sýningin á Litla forvitna fílnum heppnaðist með eindæmum vel. Aðsókn var góð, en vel yfir 100 manns létu sjá sig í Bragganum. Það var mikið klappað meðan á sýningunni stóð og stemmningin var gríðarleg. Eftir að sýningu lauk var Þórhildi leikstjóra færðar galdrakrúsir að gjöf og síðan bauð Grunnskólinn leikhópnum og aðstandendum upp á kaffi, gos og kökur.

Það má ráða það af uppsetningunni á Litla forvitna fílnum að Leikfélag Hólmavíkur þarf ekki að örvænta næstu áratugina. Það er nóg til af upprennandi stórleikurum og söngvurum á Hólmavík.

Áhættuatriði í upphafi sýningar – gestir fylgjast spenntir með.Hluti af áhorfendaskaranum.Leikstjórinn og ljónið, Þórhildur Örvarsdóttir.
fillinn10.jpg (53547 bytes)fillinn1.jpg (42977 bytes)
Python-klettaslangan
 – Erna Dóra. 
Krókódíllinn bítur í nefið á fílnum – Valdimar og Agnes.Hrafnkell sögumaður.
Börkur, Valdimar og Villi.Veiga, Börkur og Valdimar.Togað í nefið á fílnum. 
Valdimar, Agnes og Villi.Næstbesta myndin af leikhópnum.Besta myndin af leikhópnum.

– Eigið þið fleiri myndir? Láttu vita: sogusmidjan@strandir.is –

Höfundur: 

Rudyard Kipling

Leikstjóri: 

Þórhildur Örvarsdóttir

Persónur og leikarar:
 

Litli forvitni fíllinnAgnes Jónsdóttir
SögumaðurHrafnkell Fjölnisson
KrókódíllinnValdimar Friðjón Jónsson
PáfuglinnVilmundur Hlífar Böðvarsson
Python klettaslanganErna Dóra Hannesdóttir
Tré og söngvararBjarnveig Ólafsdóttir, Þórdís Karlsdóttir, Jóhanna Guðbjörg Rósmundsdóttir, Börkur Vilhjálmsson, Sylvía Bjarkadóttir, Kristján Páll Ingimundarson, Aníta Sonja Karlsdóttir, Jón Arnar Ólafsson, Vilhjálmur Jakob Jónsson, Guðjón Hraunberg Björnsson og Sigrún Björg Kristinsdóttir.

Leikstjóri, hvíslari og hljóðmaður:

Þórhildur Örvarsdóttir.

Lýsing:

Jón Gísli Jónsson og Skúli Gautason.

Ljósamaður:

Jón Ragnar Gunnarsson.

Sviðsmynd:

Kennarar og nemendur í Grunnskóla Hólmavíkur.

Búningar:

Leikfélag Hólmavíkur, Salbjörg Engilbertsdóttir, Þórhildur Örvarsdóttir og fleiri.

Hárgreiðsla og förðun: 

Salbjörg Engilbertsdóttir, Unnur Ingimundardóttir, Aldís Böðvarsdóttir, Lára Kristjánsdóttir, Saga Ingimundardóttir o.fl.

Sýningar (1):

Bragginn Hólmavík – 10. apríl 2003