Sweeney Todd: morðóði rakarinn við Hafnargötuna, var stóra verkefnið árið 2015. Mikið af ungu fólki var heima þennan vetur og tækifærið gripið. Þessi magnaða sýning býður upp á ferðalag um allan tilfinningaskalann – blóð, svita og tár! Sýningin hentar ekki ungum börnum né viðkvæmum sálum. Leikstjóri er Eyvindur Karlsson og í leikarahópnum var góð blanda yngri og reynslumeiri áhugaleikara.
Frá upphafi var ætlunin að gera eitthvað öðruvísi en venjulega. Niðurstaðan var að setja upp leikritið Sweeney Todd og frumsýna stykkið á Hörmungardögum, þeirri bráðskemmtilegu og frábærlega vel heppnuðu bæjarhátíð í Strandabyggð. Ein ástæðan var valinu á stykkinu var sú að nú var boðið upp á dreifnám í heimabyggð á Hólmavík fyrir 16-18 ára unglinga í fyrsta sinn og ástæða þótti til að taka stykki sem myndi höfða til þeirra og þeir hefðu gaman af að taka þátt í. Sem varð líka reyndin.
Sweeney Todd er eitt af sígildari verkum leikbókmenntanna og bauð sýningin upp á magnað ferðalag um tilfinningaskalann – sviti og tár var til staðar og firnafár af blóði var þarna líka. Börn yngri en 12 ára voru hvött til að vera í fylgd með fullorðnum.
Atvinnuleikstjórinn Eyvindur Karlsson var fenginn til að leikstýra. Hann fær bestu meðmæli leikhópsins og á hrós skilið, enda hélt hann alltaf í vonina um að uppsetningin yrði tímalaus snilld. Bugaðist bara aðeins örlítið á einni æfingu. Það er ekki neitt.
Að kvöldi föstudagsins langa var haldin miðnætursýning þar sem boðið var upp á kjötbökur, en sýningin gerist einmitt að hluta í kjötbökubúð frú Lovett sem notar mannakjöt í bökurnar sínar. Einhverra hluta vegna var salan á kjötbökunum ekkert glimrandi góð.
Veikindi leikara settu svip á lokasýningar verksins, sumir voru með nærri 40 stiga hita á síðustu tveimur sýningunum. En sýndu samt, sama hvað, að sjálfsögðu. Í lokaatriði einnar sýningarinnar kastaði einn leikarinn meira að segja upp inni á sviðinu, rétt eftir að hafa kvartað sáran yfir að hafa verið látinn éta allar þessar mannakjötsbökur. Tímasetningin getur ekki orðið betri en þetta.
Höfundur:
Christopher Bond
Þýðandi:
Davíð Þór Jónsson
Leikstjóri:
Eyvindur Karlsson
Persónur og leikarar:
Sweeney Todd Eiríkur Valdimarsson
Frú Lovett Ásta Þórisdóttir
Turpin dómari Jón Jónsson
Sköllótti maðurinn Matthías Lýðsson
Betlikerlingin Ingibjörg Emilsdóttir
Tækni- og hljóðmaður:
*
Lýsing:
*
Ljósamaður:
*
Sviðsmynd, tjald og leikmunir:
*
Búningar og leikmunir:
*
Hárgreiðsla og förðun:
*
Leikskrá:
Salbjörg Engilbertsdóttir
Miðasölustjóri:
Ester Sigfúsdóttir
Sýningar:
Frumsýning: Laugardaginn 21. febrúar, kl. 20:00 – Félagsheimilinu á Hólmavík
2. sýning: Mánudaginn 23. febrúar kl. 20:00 – Félagsheimilinu á Hólmavík
3. sýning: laugardaginn 28. febrúar, kl. 20:00 – Félagsheimilinu á Hólmavík
4. sýning: Sunnudaginn 29. mars, kl. 20:00 – Félagsheimilinu á Hólmavík
5. sýning: Miðnætursýning 3. apríl, kl. 22:00 – Félagsheimilinu á Hólmavík
Lokasýning: Páskadagskvöld 5. apríl kl. 20:00 – Félagsheimilinu á Hólmavík