December 28, 2024

Staður og stund ¤ 1991 

Staður og stund er heilmikið sjálfsmorðsdrama, ætlað til að vekja fólk til umhugsunar um lífið og tilveruna á þessum síðustu og verstu tímum. Leikritið er frekar stutt og það var líka eins gott, því áhorfendur hafa án efa flestir verið orðnir efins um tilgang lífsins þegar líða tók á sýninguna.

Staður og stund var hluti af þríleiknum: Það er list að lifa. Leikritið var samt sýnt einu sinni oftar en þríleikurinn af því farið var með einþáttunginn á bandalagsþing á Blönduósi og hann sýndur þar við góðar undirtektir.

stadur1.jpg (25286 bytes)

– Smellið á myndirnar til að sjá stærri útgáfu –

Höfundur: 

Peter Barnes

Leikstjóri og hvíslari:

Arnlín Óladóttir

Persónur og leikendur:
 

HelenSandra Gunnarsdóttir
Anna Salbjörg Engilbertsdóttir

– Sjá nánar: Það er list að lifa –