Allt í plati er barnaleikrit af bestu gerð. Í því blandast saman hinar ýmsu persónur sem Thorbjörn Egner og Astrid Lindgren sköpuðu og allt fer í ægilegan hrærigraut undir styrkri stjórn Línu Langsokks og Níelsar apa. Mikill söngur er í verkinu og var brugðið á það ráð að setja saman leikhúshljómsveit til að spila undir.
Ágætlega gekk að manna sýninguna og 7 manns þreyttu frumraun sína á sviði. Á ýmsu gekk við uppsetningu verksins. Ræningjarnir og ljónið þeirra fór til dæmis í auglýsingaherferð um Hólmavík og enduðu allir í klóm lögreglunnar ásamt Mikka ref sem hafði stolið hangikjöti og svínarifjum úr KSH. Vakti það mikla kátínu meðal viðstaddra barna.
Jón Gísli Jónsson gerðist bjargvættur þegar allt virtist komið í hönk og tók við tveim hlutverkum vegna forfalla með litlum fyrirvara. Litlu munaði að hann fengi að taka við einu hlutverki í viðbót þegar ljón ræningjanna datt fram af ógnarháu sviðinu á sýningunni á Drangsnesi. Sem betur fer stóð það upp aftur, grimmara en nokkru sinni.
Leikferðin til Reykjavíkur var ævintýraleg í meira lagi. Þangað var farið á einkabílum og allt gekk vel þar til lagt var af stað heim. Þá skall á ofsabylur með tilheyrandi snjókomu og ferðin sóttist verulega seint. Lestin stoppaði í Deildarbrekkunni sálugu og voru bílarnir spilaðir þar upp af góðum mönnum. Fyrstu bílarnir voru komnir til Hólmavíkur eftir 14 tíma ferðalag og voru menn blautir, svangir og hraktir. Svona gerum við aldrei aftur. Betra er að bíða eftir að veðrinu sloti.
Höfundur:
Þröstur Guðbjartsson
Leikstjóri:
Sigurður Atlason
Persónur og leikarar:
Lína Langsokkur | Herdís Kjartansdóttir |
Níels api | Ósk Ágústsdóttir |
Lilli klifurmús | Ester Ingvarsdóttir |
Mikki refur | Sigurður Atlason |
Amma mús | Guðmunda Ragnarsdóttir |
Hérastubbur bakari | Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir Jón Gísli Jónsson |
Stubbur bakaradrengur | Rebekka Atladóttir |
Jesper | Vignir Örn Pálsson Jón Gísli Jónsson |
Kasper | Arnar S. Jónsson |
Jónatan | Eysteinn Gunnarsson |
Ljónið | Sigmundur Sigurðsson |
Soffía frænka | Salbjörg Engilbertsdóttir |
Karíus | Árdís B. Jónsdóttir |
Baktus | Jóhanna Ása Einarsdóttir |
Leikhúsbandið:
Ásdís Jónsdóttir – Gítar
Eyþór Gissurarson – Gítar
Sveinbjörn Dýrmundsson – Bassi
Ragnar Ölver Ragnarsson – Trommur
Gunnar Grímsson – Trommur á Drangsnesi
Hvíslari:
Hildur Björnsdóttir
Sviðsmynd:
María Guðbrandsdóttir, Sigurður Atlason og nemendur Grunnskólans
Förðun:
María Guðbrandsdóttir og Salbjörg Engilbertsdóttir
Búningar
Sunna Vermundsdóttir, Jónína Gunnarsdóttir og Sólrún Jónsdóttir
Ljósamenn:
Jóhann L. Jónsson og Bjarki Guðlaugsson
Sýningar (6):
Hólmavík (Bragganum) – 21. nóvember 1992
Hólmavík – 21. nóvember
Hólmavík – 28. nóvember
Drangsnes – 29. nóvember
Reykjavík – 13. desember
Hólmavík – 2. janúar 1993