Í leikskránni kemur ekki margt fram um verkið sem nýtist hér, en árið 1985 er nokkuð fyrir mitt minni. Einu óþarfa upplýsingarnar um verkið og uppsetninguna sem í leikskránni er að finna er að leikritið er í þremur þáttum og fer fram í setustofu í íbúð Bates höfuðsmanns í London.
Aftan á leikskránni stendur svo: Góða skemmtun. Af 72 myndum sem nýverið fundust frá uppsetningu leikritsins (allar á stærð við lítið frímerki og sum andlitin hafa verið þurrkuð út eins og hér fyrir ofan) má ráða að um er að ræða sakamálaleikrit.
– Allar upplýsingar um verkið og uppsetning þess væru vel þegnar! –
– Smellið á myndirnar til að sjá stærri útgáfu –
Höfundur:
Stafford Dickens
Þýðandi:
Ragnar Jóhannesson
Leikstjóri:
Auður Jónsdóttir
Leikarar:
Nick Bates, höfuðsmaður | Sigurður Atlason |
Sally Watts | Þorbjörg H. Halldórsdóttir |
Dína Carton | Rannveig Þöll Þórsdóttir |
Claude Carton, prófessor | Örn Halldórsson |
Parker | Friðrik Runólfsson |
Watson, leynilögregla | Sigurður Vilhjálmsson |
Hvíslari:
Margrét Guðmundsdóttir
Ljósameistari og aðstoðarmenn:
Hörður Ásgeirsson, Sævar Benediktsson og Drífa Hrólfsdóttir.
Smíði og leiktjöld:
Ásmundur Vermundsson, Sigurður Atlason, Haraldur Jónsson, Sævar Benediktsson, Örn Halldórsson og Jóhann S. Magnússon.
Búningar og saumaskapur:
Katrín Sigurðardóttir og Drífa Hrólfsdóttir.
Sýningar (4):
Allar á Hólmavík (?)