Sjóleiðin til Bagdad eftir Jökul Jakobsson var fyrsta uppsetning Leikfélags Hólmavíkur á leikriti í fullri lengd. Björninn var einþáttungur.
Góð aðsókn var að leikritinu, bæði á Hólmavík og í leikferðalögum. Til Drangsness var sjóleiðin farin á Hilmi ST-1, enda var vegurinn ófær. Síðan var siglt heim aftur um nóttina. Menn létu ekki stoppa sig á þessum árum frekar en þeir gera í dag. Samkomuhúsið Baldur á Drangsnesi hafði nýlega verið tekið í notkun og var ekki alveg fullklárað. Hljómburðurinn var því sérstaklega skringilegur.
Eftir áramótin var sýningin æfð upp og sýnt á Hvammstanga. Siggi Villa flutti leikmyndina á vörubíl, en aðrir fóru á einkabílum. U.þ.b. 50 áhorfendur mættu á sýninguna þar.
Til gamans má geta þess að miðaverð á leikritið var 90 krónur fyrir fullorðna, en 50 krónur fyrir börn.
Lýst er eftir myndum, minningum og nánari upplýsingum!
Höfundur:
Jökull Jakobsson
Leikstjóri:
Kristín Anna Þórarinsdóttir
Persónur og leikarar:
Mundi | Friðrik Runólfsson |
Þuríður | Katrín Sigurðardóttir |
Signý | Anna Jóna Snorradóttir |
Hildur | Kolbrún * |
Eiríkur | Sigurður Atlason |
Gamli maðurinn | Kristján Jónsson |
Halldór | Jón Magnús Magnússon |
Sýningar (5):
Hólmavík – 4. desember
Hólmavík – 6. desember
Hólmavík – 6. desember
Drangsnes – 11. desember
Hvammstangi – 10. janúar