Leikritið Björninn eftir Anton Tchekov var fyrsta verkefni Leikfélags Hólmavíkur. Leikfélagið var stofnað 3. maí 1981 og því kom sú ákvörðun Sýslunefndar Strandasýslu að halda Menningarvöku sumarið 1981 sem himnasending fyrir félagsmenn.
Á dagskrá þessarar menningarvöku sem var haldin víðs vegar um sýsluna voru m.a. myndlistarsýningar, kvikmyndasýningar, leiksýningar og söngskemmtanir. Kirkjukór Hólmavíkur, Kór Átthagafélags Strandamanna og söngflokkurinn Hvítabandið héldu konserta.
Þjóðleikhúsið sýndi leikritið Í öruggri borg eftir Jökul Jakobsson og hið unga Leikfélag Hólmavíkur var óðfúst að sýna sig sem fyrst og ákvað að láta slag standa og vera með þótt lítill tími væri til stefnu. Leikritið Björninn sem stundum heitir líka Ruddinn varð fyrir valinu.
Fyrsta leiksýning Leikfélags Hólmavíkur var heldur en ekki söguleg. Hún var haldin í Trékyllisvík og forsetinn sat á fremsta bekk.
Höfundur:
Anton Tchekov
Leikstjóri:
Kristín Anna Þórarinsdóttir
Persónur og leikarar:
Helena Ivanova Popova | Alma Brynjólfsdóttir |
Grigori Stephanovitsj Smirnov | Eyjólfur K. Emilsson |
Lúka, þjónn frú Popovu | Friðrik Runólfsson |
Ökumaður | Hjálmar Halldórsson |
Garðyrkjumaður | Jón Magnús Magnússon |
Sýningar (3):
Trékyllisvík – 23. júní
Sævangur – 24. júní
Borðeyri – 3. júlí