Hurðarhúnn í aðalhlutverki
Þegar Landabruggið var sýnt í Króksfjarðarnesi skemmtu áhorfendur sér vel að vanda. Best skemmtu þeir sér þó yfir óvæntri uppákomu laust fyrir hlé. Þannig var að Lína og Ferdinand (Steina og Ómar) voru á sviðinu og áttu að strunsa út, eins og venja er í försum þar sem allt byggist upp á hröðum skiptingum. Steina þreif í hurðarhúninn, en hurðin opnaðist bara hreint ekki. Húnninn var laus og snerist bara í hringi. Steina kippti aftur í og rykkti síðan svo duglega í að leikmyndin lék öll á reiðiskjálfi. Áhorfendur i Króksfjarðarnesi eru einstaklega skemmtilegir og hlógu dátt að þessum vandræðagangi. Steina rykkti einu sinni enn og nú stóð hún með hurðarhúninn í hendinni. Þá trylltust áhorfendur úr hlátri.
Baksviðs biðu aðrir leikarar eftir að Lína og Ferdinand kæmu stormandi út. Áhorfendur hlógu og hlógu. “Hvern djöfulinn eru þau að gera sem er svona svakalega fyndið,” sagði Jón Jónsson (Hans Hólm lögmaður), orðljótur að vanda, við Magnús Rafnsson (Ingjald landabruggara) baksviðs. Áhorfendur veltust um. “Ég hef ekki hugmynd,” sagði Magnús og kíkti inn um rifu á leiktjöldunum.
Landabruggarinn var fljótur að átta sig þegar hann sá húninn í höndum Steinu og reyndi að opna hurðina utan frá. En þar var allt á sama veg, hurðin ætlaði ekki að opnast. Ingjaldur tók því tvö skref afturábak og fleygði sér á hurðina (fleygði sér á dyr), heimili hæstaréttarlögmannsins lék á reiðiskjálfi, hurðin hrökk upp og bruggarinn valt inn á sviðið. Áhorfendur veinuðu af fögnuði, enda var þeim fullljóst að þetta væri ekki partur af leikritinu. Landabruggarinn hafði nefnilega rétt áður verið færður til yfirheyrslu og átti að dúsa í steininum á þessari stundu. “Afsakið, afsakið, eins og þeir siviliseruðu segja,” sagði Ingjaldur, ráfaði út aftur og hinir á eftir. Það heyrði enginn í honum. Áhorfendur hættu ekki að hlægja fyrr en hléið var að verða búið.
Það verða bara engin jól …
Í Jóladagatalinu sem sett var upp árið 1989 átti Ásdís Jónsdóttir sem lék Grýlu frekar erfitt með að muna textann sinn. Á annarri sýningunni á Hólmavík kom að þeim dapurlega hápunkti verksins að jóladagatalið var týnt. Þá áttu ljósin að slokkna í smástund og sorgleg grafarþögn að ríkja í nokkurn tíma. Síðan átti einn jólasveinninn að fá hugmynd um hvernig leysa mætti málið og ljósin að kvikna. En í þetta sinn höfðu ljósin varla slokknað þegar Grýla hóf upp raust sína og þrumaði yfir salinn: “Það verða bara engin jól!” sem var lykilsetning aftarlega í leikritinu.
Með þessu stytti hún leikritið um allmargar blaðsíður, þannig að Kertasníkir, leikinn af Jóni Jónssyni, tók sig til og barði duglega á tánni á henni í myrkrinu. Grýla áttaði sig á því að eitthvað væri bogið við þetta og byrjaði nú aftur og núna á stað sem hún var býsna viss um að væri réttur: Verið bara rólegir, strákarnir mínir! sem var inngangur að yfirheyrslu um skógjafir nóttina áður.
En það var eins og áður. Nýja klausan var ekkert réttari og kaflann sem hún byrjaði á núna var löngu búið að leika. Hvíslarinn sem að þessu sinni var Salbjörg Engilbertsdóttir upplifði eina sína skelfilegustu stund í leikhúsinu, enda átti hún auk þess að hvísla að vera ljósamaður og deyfa ljósin og stilla inn nýja lýsingu með annarri hendi áður en kveikt var aftur og auk þess að spila lag á sílafón í myrkrinu með hinni hendinni. Átti hún því erfitt með að fletta fram og aftur í handritinu á meðan.
Leikritið hoppaði aftur á bak um nærri 15 mínútur, en með harmkvælum var því aftur kippt í liðinn af Kertasníki sem var einn af höfundum verksins og kunni það því bæði afturábak og áfram. Hann tók orðið af móður sinni áður en verr fór og sýningin hélt sínu striki, á nokkurn veginn réttum stað, eftir nokkrar afar undarlegar og samhengislausar setningar og dálítið skrítnar samræður þar sem Kertasníkir stóð upp í hárinu á Grýlu og útskýrði málin fyrir henni.
Áhorfendur tóku örugglega ekki eftir neinu undarlegu, þótt leikritið væri kannski ögn ruglingslegt þessi andartök sem virtust heil eilífð á sviðinu.
Þetta er bara hún amma!
Í annað skipti voru ærslin og lætin í jólasveinahellinum með meira móti og Grýla var óvenju hvöss og illileg þegar hún skammaði jólasveinana. Virtist þá um stund eins og grátur myndi breiðast út í áhorfandasalnum, þar til stúlka sem sat framarlega í salnum stóð upp í stólnum sínum og róaði viðstanda með þessum orðum: “Þetta er allt í lagi, ekki vera hrædd. Þetta er bara hún amma mín.”
Handleggsbrotnaði við mikinn fögnuð áhorfenda …
Þegar Leikfélagið sýndi Einn koss enn í Króksfjarðarnesi árið 1994 lögðu leikarar sérlega hart að sér við að vekja kátínu áhorfenda. Svo mikill var atgangurinn að í lokaatriðinu handleggsbrotnaði Sigurður Atlason en lék þó sýninguna til enda, að vísu óvenjulega grettur á svip. Sagt var frá þessum viðburði í blöðum og orðað þannig að Siggi hefði handleggsbrotnað við mikinn fögnuð áhorfenda.
Ef einhverjir kunna skemmtilegar sögur af uppákomum á sviðinu, endilega sendið okkur póst.