Markólfa er hraður farsi af bestu gerð. Í honum er hoppað, dottið, hlaupið og hrópað, það eru einkenni svona sýninga. Markólfa snýst að mestu leyti um happdrættismiða sem vinnukona markgreifa nokkurs festir kaup á. Svo virðist sem hún hafi dottið í lukkupottinn og fengið stóra vinninginn. Þá fer atburðarásin af stað svo um munar og hnúturinn virðist á tímabili óleysanlegur.
Markólfa var fyrsta stóra uppsetning félagsins um nokkurt skeið. Fjögur voru að spreyta sig á leiksviðinu í fyrsta skipti og stóðu sig með eindæmum vel. Æfingar fóru fram í jökulköldum Sævangi og þar var verkið einnig sýnt alls þrisvar sinnum. Ýmislegt kom upp á við æfingar og á sýningum. Gríðarlega langur tími fór í að æfa skylmingaatriði markgreifans og Jóseps, sem og dansatriði Jóseps og Markólfu, en það varð ekki tilbúið fyrr en rétt fyrir frumsýningu. Þess verður minnst sem klunnalegasta dansatriðis sem sést hefur á sviði.
Á sýningu í Árnesi ákváðu Einar og Arnar að bregða á leik og skylmast úti í sal á meðal áhorfenda. Það fór ekki betur en svo að um leið og Arnar stökk niður af sviðinu rifnuðu buxurnar hans nánast í tvennt. Áhorfendur horfðu því skelfingu lostnir á hálfberan Jósep, sem var sjálfum nokkuð brugðið, það sem eftir var af leikritinu.
Óhætt er að segja að leikstjórinn annars vegar og formaður og fjárhagur félagsins hins vegar hafi ekki átt skap saman. Meira en það er ekki óhætt að segja. Eftir að Markólfa var sett upp voru ekki fengnir utanaðkomandi leikstjórar, fyrr en Skúli Gautason mætti galvaskur á svæðið 2003 til að setja upp Sex í sveit.
OKKUR VANTAR FLEIRI MYNDIR !!! –
Höfundur:
Dario Fo
Leikstjóri:
Guðrún Alfreðsdóttir
Persónur og leikarar:
Markgreifinn – Einar Indriðason
Markólfa – Hlíf Hrólfsdóttir
Jósep – Arnar S. Jónsson
Franz gamli – Erlendur B. Magnússon
Teresa – Hrafnhildur Þorsteinsdóttir
Furstynjan – Guðbjörg Gunnlaugsdóttir
Rödd blaðasala – Guðmundína Arndís Haraldsdóttir
Hvíslari og hljóðmaður:
Guðmundína Arndís Haraldsdóttir
Lýsing:
Magnús Rafnsson og Einar Indriðason
Sviðsmynd:
Arnar S. Jónsson og Ásmundur Vermundsson
Búningar:
Sigríður Einarsdóttir, Helga Sigurðardóttir, Kristín Sigmundsdóttir, Ragnheiður Guðbrandsdóttir og Guðrún Ásmundsdóttir
Hárgreiðsla og förðun:
Salbjörg Engilbertsdóttir
Sýningar (alls 5):
Sævangur – 21. maí
Sævangur
Drangsnes
Sævangur
Árnes